LÚXUSHÚS Í NORÐRI -

LÚXUSHÚS Í NORÐRI -
Perlur norðurlands innan seilingar. Milli Akureyrar og Húsavíkur

Bóka Learn more

SVARTABORG


Svartaborg er í Kaldakinn í Þingeyjasveit.  Húsin 6 standa í hlíð með góðu útsýni yfir dalinn og sólsetrið í norðri.  Staðsetning er mjög góð þegar kemur að helstu perlum Norðurlands eystra.  Mætti þar nefna dagsferðir til að skoða Goðafoss og Mývatnssveit, Ásbyrgi og Dettifoss, Sjóböðin Geosea og hvali á Húsavík, Melrakkasléttu og Akureyri svo eitthvað sé nefnt.  Húsin voru opnuð sumarið 2020 og eru fallega hönnuð með þægindi í fyrirrúmi.  Einstök hús hönnuð af eigendunum og hönnuðunum Róshildi og Snæbirni sem búa á staðnum á gamla sveitabæ forfeðra Róshildar.    

Húsin eru með fullbúnu eldhúsi, gasgrilli, og heitum potti við hvert hús. 

Fullkomið fyrir ski in ski out fjallaskíða og gönguskíða fólk.  

Our Rooms

Þjónusta

Boðið er upp á frítt kaffi og te

Ski In Ski Out

Hægt er að stíga beint á fjallaskíðin og gönguskíðin úr húsunum.  Troðnar göngubrautir og nóg af fjalllendi fyrir ofan húsin.

Aðgengi er fyrir fatlaða

Þrif innifalin

Frábær staðsetning

Stutt að sækja perlur Norðurlands

Mývatn, Goðafoss, Húsavík, Akureyri, Ásbyrgi, Dettifoss

Heitur pottur í öllum húsum

Like what you see? Check our rates here